Jæja verður
maður ekki aðeins að segja frá helginni síðustu svo að eitthvað
verði nú að lesa á þessari síðu. Löngu var ákveðið að hafa hana
í rólegri kantinum þar sem þynnka er búinn að vera með
yfirhöndina í hálft ár og svo var Helgi náttúrulega hellaður í
hnéinu eftir gömlu kellinguna hér fyrir ofan sem kastaði
bjórkassa í þindina á honum á meðan hann var að synda í fossinum
hér handan við hornið, helvítis kellinginn. Eydís var að
útskrifast á fös (til hamingju með það), jói varð 24 (til
hamingju með það) og raggi var að koma í heimsókn svo það
virtist nóg vera að gera. Raggi dúllulingur stoppaði í stutt
stopp, kíkti í mat til Eydísar þar sem lambalæri og allskonar
flottheit voru á boðstólnum en þar sem drykkja hófst um hádegi
eins og vanalega þá var ákveðið að yfirgefa staðinn áður Helgi
staurfótur færi að vanga við mömmu Eyju og Jo Jo da hobo færi að
skalla skápa. Haldið var í 24 ára ammæli jóa harða, þar sem
mikill fjöldi dúlla var við drykkju og gengið var frá húsum.
Svo farið í bæinn
og djammað, búið. En það fyndasta var náttúrulega að ég og jói
vorum í veðmáli sem hljóðaði svo: Night at the Roxbury, atriðið
þegar Will Farrell er að missa sveindóminn, þá segir
hann:
1) beúú, beúú, og gellan what
the fokk u doin, this is the sound of the ambulance pikkin me up
cause I had a heart attack when I saw u, beúú, beúú, beúú, beúú.
(halla version)
2) Do u know what I heard the
first time I layed eyes on u, beúú, beúú, what da fokk u doin
o.s.frv. (jóa version)
Jóa version var
rétt en ég náði að gabba hann með kænsku, gáfum og yfirburðar
myndarleika. Sá sem tapaði þurfti að gera þetta við eina stelpu sem
nýflutt er í bæinn. Í ammælinu hjá jóa gerir hann þetta 2 við hana
og í bæði skiptinn er hann sleginn fastar en golfkúla sem þarf að
fara 300m í 30 vindstigum sem var helvíti skemmtilegt og ekki nóg
með það, þá var hann skallaður seinna um kvöldið. Nú um þessar
mundir er eymd hans mín helsta ánægja, i love it, seinheppnasti
maður í heimi, án gríns hann er verri en helgi og svo elska ég það
líka að ef það er hundaskítur á götum úti þá labbar hann í það. I
love it.
Daginnn eftir fer
raggi árla morguns í norðurátt, áttina til bróður síns sem býr við
bæ kenndan við hús sem kennd eru við árar. Þynkumælirinn nánast
fullur hjá okkur Sigga og Helga þannig að dagurinn er bara tekinn
út í gegn í Tiger woods, sem ég rústa náttla. Kvöldið á bara að
vera rómó með bjór í annari og tiger í hinni en nei nei þá birtast
3 yndisfagrar yngismeyjar sem allt í einu breytast í djöflakonur
með svipur og vodka. Það voru Beta, ragga, og alla, á svaka
djammi. Helgi ætlar að vera harður og gefa þeim vodka og heldur að
þær segi nei eins og stelpur eru vanar að segja en nei nei þá taka
þær bara flöskuna af honum og klára hana á 5 mínútum ásamt því að
troða nokkrum í okkur, djöflakonur. Nokkuð fyndið að fylgjst með
þróun mála þar sem maður var nokkuð edrú. Helgi náttla meiddur og
getur ekkert gert og ætlar þess vegna að vera heima, en hvað gerist
svo, 1 yndisfríð og lekker stelpa labbar inn sem við köllum bara
Alla og helgi breytist úr sívælandi haltrandi hænu yfir í daunillan
dansandi lemúr og skellir sér á Crazy daisy að dansa með robocop
spelku á annari svo hann dansaði bara á einni löpp og með hina
útrétta, hehe. Það kallar maður að hugsa með t*****u. Svo er hann
alltaf að væla að ég þurfi að stjana við hann af því að hann getur
ekki gert neitt, svo mætir sæt stelpa og hann byrjar að taka
heljarstökk og dýfur í lækinn hérna handan við hornið.
Hey, stay in band
and we´ll go up to sand, up in iceland and make out with
rand(-ver)