DK
24.09.2006 21:32:56 / david

Ný síða gott fólk

Jæja þá hefur fólkið sem býr hérna saman á molletoften í horsens ákveðið að opna síðu saman og skrifa þannig um vitleysuna í henni systu. síðan er:   
themansion.bloggar.is

hún er ennþá í vinnslu. en þetta hlýtur að koma einhvern tímann. allavega fyrir seagal tónleikana

þar verður sett inn myndir og video frá Pearl Jam tónleikunum sem ég og jói vorum í berlín!

meira seinna helgi

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.09.2006 17:23:02 / david

The man in köben 25 jan

Ég hoppa af gleði þessa dagana. Er ég var ungur átti ég fyrirmynd sem er pottþétt fyrirmynd flestra ef allra barna. Fallegur, sterkur, náttúruvænn og þykir vænt um konur. Já þið giskið rétt, það er hann. Það er hann Steven Seagal!!!! Myndirnar sem hann hefur gert eru ótrúlega góðar, verða bara betri og betri. Eða eins og er sagt, batnar með aldrinum. Heyrðu já, ekki nóg með það. Þá er hann snillingur á gítarinn. Hann veit sko alveg hvernig á að höndla gítarinn. Minn maður er að túra um evrópuna núna og getiði hvar hann verður 25 jan. Já þið giskið aftur rétt. Í kóngsins Köben. Hann verður með tvo tónleika þarna í kring og það er eitthvað sem allir þurfa að sjá. Því þessi maður er átrúnaðargoð allra. Hver myndi ekki vilja hafa tagl eins og hann. Svo ég mana alla sem elska hann og tilbiðja að skella sér til danmerkurnar að sjá þennan meistara. Því hver veit, maður gæti fengið að koma við hann, kannski að læra nokkur trikk sem gæti hjálpað manni í gettóinu í vesturbænum í Kópavogi. Það verður hópferð héðan úr Horsens á tónleikana og held að talan sé að nálgast sjötta tuginn.

 

 

 



Og ekki nóg með það, að það sé einn frábær hlutur að gerast, þá eru ég og hann jóhannes, að skella okkur til Berlínar á fimmtudaginn á PEARL JAM tónleika. Ekki verður það slæmt. Spurning samt hvor er þekktari. Steven Seagal eða Pearl Jam. Hallast meira að Seagalnum.

 

 



Svo er vert að nefna að það var íslendingaball í gær og temað var rautt og hvítt. Svo að við 5 vinirnir keyptum okkur rykgalla og spreyuðum danska fánann á okkur og gerðum kellingarnar vitlausar. Það var byrjað að frussast á okkur þær voru svo graðar.

 

 



Meira seinna, baywatch in the mourning að byrja.

 

 



Helgi (aka helgi seagal)

 

 




» 4 hafa sagt sína skoðun

10.09.2006 21:23:00 / david

We are back and twice as bad on our beautiful sunset boulevards dancing house in the joy of life

Jæja jæja jæja hvar á maður að byrja eiginlega á þessari bloggfærslu. Langur tími síðan blogg kom inn á snærið og eftir margar morðhótanir og íspinna ákvað maður að reyna koma þessu í gang aftur. Við dúllubossarnir erum mættir aftur eftir gott sumarfrí, gott að vera kominn aftur í land hinna fallegu. Aðallega í ódýra bjórinn sem ég er reyndur hættur að nýta mér, ef ekki nennt að drekka mikið á þessum tveimur vikum sem ég er búinn að vera hérna. Er bara á hrísgrjónakúr þessa dagana, hjóla 5 km á dag, syndi 2 km, æfi mig í jassballetnum í tvo tíma á dag og síðan er það nottla skólinn. Það gerðist mikið sneðugt í sumarleyfinu og maður nennir varla segja það allt en hér svona það helsta.

·       Halli og Siggi héldu að þeir væru einhverjir ofurhugar og reyndu að fljúga niður bröttustu brekku sem sögur fara af. Og í þeim látum slasaði Halli sig slatta, þar á meðal rifnaði önnur geirvartan af honum.

·       Brian danski pungurinn var í heimsókn og trúlofaði sig hjá Gullfossi og skapaði nottla ástæðu til að hrynja í það.

·       Maður kemur með meira um sumarið í næstu færslu.

 

 



Annars er alltaf ljúft á molletoften, meðaltalið á gestum hérna hjá okkur síðan við komum aftur er búið að cirka 17 manneskjur svo það hefur þétt setið við arininn með ölið!!

Nú búum við 5 hérna eins og er, ég, halli, jói, systa og ungur pungur er nefndur er Andrés og því miður er hann líka frá Keflavík en er svo sem skítsæmilegur. Systa er í herbergi sem verður örugglega til vandræða því það kólnar nottla ekki á henni klofið. Og face the fact að ég er ómótstæðilegur!!!! En hnátan verður nú bara að reyna hemja sig í þessari greddu sinni. Hún er á einhverju lóðaríi þessa dagana greyið.

 

 



Im out, BAYWATCH að byrja!!!

 

 



Helgi Hasselhoff


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 16:19:20 / david

Kominn tími til

Jæja er ekki kominn tími til að rífa sig upp úr ræsinu og setja eina færslu inn!! En þessi bloggleti hefur sína sögu. Glætan spætan að við mundum ekki sleppa því að blogga í hverri viku um sukkið og sköllótta kvenmenn. Nei takk, ekki á mínum bæ!! Þetta byrjaði þannig að þann 15 mars settist ég niður fyrir framan tölvuna og hóf bloggskrifið, en viti einfættir stórir dvergvaxnir menn, BAYWATCH AT NIGHTS byrjaði og sökk ég gjörsamlega inn í þáttinn. Hann var það ógeðslega, viðbjóðslega góður að hann skildi ekkert eftir sig og ég bara gjörsamlega gat ekki munað um hvað hann var! Þá gjörsamlega datt ég úr bloggstuðinu þann daginn. Daginn eftir var ég ennþá gjörsamlega ónýtur eftir þennan þátt, leið eins og þunnur með ræpu! Svo ég sagði Halli Hönks að blogga, og viti sjóveikir smávaxnir risamenn, annar þáttur í seríu 2 af BAYWATCH AT NIGHTS byrjaði. Og eins og fyrr kom fram sökk Halli inn í þáttinn var nokkuð skemmdur eftir þetta. En á mjög góðan hátt!! Mjög mannskemmandi á mjög góðan hátt. Og eftir þessir rosalegu þættir komust í okkar æðar urðum við að fá meira. Þetta er vanabinadi efni. Við byrjuðum að downloada öllum 13 seríunum. Og eftir það byrjaði var no turning back. Þannig var ástæðan fyrir bloggleysinu fram í miðjan apríl. Þar eftir hófst langt erfitt skeið sem reyndi virkilega líkamlegu og andlegu hliðina. Maður fær enn martraðir. Martraðir að ég sé að sökkva í stóran brúnan pytt, soldið þykkan pytt ef svoleiðis má að orðum komast. Hann Jói Pulsa, vinur okkar, byrjaði fá hrikalega veiki. Sem vinir urðum við nottla að standa með honum í þessum erfiðu veikindum sem einkenndist af því að það hann ræpaði úr öllum götum á líkamanum! Oft og mörgu sinnum kom maður að honum að frussudrulla og með fötu fyrir framan sig því þetta kom þar líka, ef bara ekki meira þar. Hann kallinn er að jafna sig á þessum veikindum.

 

En meðan þessi bloggleti stóð yfir hefur margt sniðugt gerst og hér eru nokkir punktar

  • Við fórum fjórir (ég, halli, jói pulsa og siggi) í fræknaferð til íslands um páskana sem endaði í 2 kössum í lestarferðinni til kastrup, og er var komið á flugvöllinn gleymdi eitthver eitthverju löngu í lestinni og sumir aðrir reyndu að kúra hjá fatagínum sem höfðu dottið á hliðina meðan hinn reyndi að fara í 69 með annari. En við komumst á klakann.
  • Við strippuðum í gæsapartýi, einn kynnir og fjórir stripparar, og gerðum allt svoleiðis vitlaust með Gnarles Barkley, kellingarnir æptu og reyndu að klæða strákana úr þeim litlu klæðum sem eftir var.
  • Við Hasselhoff slátruðum tveggja kylfu golfmóti hérna, þar sem sá stærri var í þriðja og sá minni var í fyrsta sæti, og sigurverðlaun fékk ég út að borða fyrir tvo á helvíti flottan veitingastað! Vinningur var fyrst ætlaður fyrir einhvern sem átti kærustu og gæti boðið konunni á flottan veitingastað, svo ég verð bara að bjóða kellingunni minni , Halla.
  • Undanfarið hefur verið mikið sullað í gosbrunninum hérna handan við hornið. Ég og Siggi hlupum nokkra hringi og en svo kvöldið eftir gerðist snilldin. Jói Pulsa kemur hlaupandi út og byrjar að afklæðast og hoppar í brunninn og ætlar síðan að vera voða sniðugur og hleypur út á götu í þeim tilgangi að húkka far, en viti sveittir rónar, er það þá ekki löggumannabíll og hleypur jói tilbaka eins og pulsan sem hann er. Og í öllum þessum látum kemur Halli út og byrjar að stripplast líka og hoppa í brunninn, en viti eistnalangir eþóíubúar, löggumannabíllinn mætir aftur svæðið og halli byrjar að hlaupa undan, einungis g-strengi klæddur.
  • Einn þriðjudaginn var ákveðið að fara á risaströndina hér í Horsens endaði sú vitleysa með einhverju partýi heima hjá einhverjum tyrkja. Halli kemur með söguna af því í næsta bloggi.
  • Ármann gleypti næstum því unga hnátu í rifrildum

 

 

Þetta eru svona það helsta sem ég man, en það hlýtur koma meira seinna meir.   En í gær var bekkjarferð til Arhus að skoða eitthvað listasafn, útað borða og í leikhús!! En tókum þetta allt og hrundum í það!! Helvíti gaman bara. Nema að með okkur var ein pulsa úr bekknum sem við köllum: Framtíðar Gunnar, Futurama Alien, Chubaca (eða hvernig sem það er skrifað). Það hefði alveg mátt sleppa því hann ældi alla lestina út í bakaleiðinni og við þurftum að halda á honum restina og hann er 2 metrar á hæð. Svo áður en heim var haldið fórum við á bara í Arhus og þar var tilboð á barnum að 10 skot á 200 kr dk (2500 isl). Tveir gaurar úr bekknum tóku þessu tilboði aðeins of vel og tóku held 60 skot!!

 

Það eru komnar fullt af nýjum myndum

Hasselhoff bræður kveðja að sinni, höfum ekki tíma fyrir meiri skriftir því Baywatch in the afternoon er að byrja og því má maður ekki missa af.



 



 



 



 


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 13:08:26 / david

Beúú

Jæja verður maður ekki aðeins að segja frá helginni síðustu svo að eitthvað verði nú að lesa á þessari síðu. Löngu var ákveðið að hafa hana í rólegri kantinum þar sem þynnka er búinn að vera með yfirhöndina í hálft ár og svo var Helgi náttúrulega hellaður í hnéinu eftir gömlu kellinguna hér fyrir ofan sem kastaði bjórkassa í þindina á honum á meðan hann var að synda í fossinum hér handan við hornið, helvítis kellinginn. Eydís var að útskrifast á fös (til hamingju með það), jói varð 24 (til hamingju með það) og raggi var að koma í heimsókn svo það virtist nóg vera að gera. Raggi dúllulingur stoppaði í stutt stopp, kíkti í mat til Eydísar þar sem lambalæri og allskonar flottheit voru á boðstólnum en þar sem drykkja hófst um hádegi eins og vanalega þá var ákveðið að yfirgefa staðinn áður Helgi staurfótur færi að vanga við mömmu Eyju og Jo Jo da hobo færi að skalla skápa. Haldið var í 24 ára ammæli jóa harða, þar sem mikill fjöldi dúlla var við drykkju og gengið var frá húsum. Svo farið í bæinn og djammað, búið. En það fyndasta var náttúrulega að ég og jói vorum í veðmáli sem hljóðaði svo: Night at the Roxbury, atriðið þegar Will Farrell er að missa sveindóminn, þá segir hann:

1)      beúú, beúú, og gellan what the fokk u doin, this is the sound of the ambulance pikkin me up cause I had a heart attack when I saw u, beúú, beúú, beúú, beúú. (halla version)

2)      Do u know what I heard the first time I layed eyes on u, beúú, beúú, what da fokk u doin o.s.frv. (jóa version)

Jóa version var rétt en ég náði að gabba hann með kænsku, gáfum og yfirburðar myndarleika. Sá sem tapaði þurfti að gera þetta við eina stelpu sem nýflutt er í bæinn. Í ammælinu hjá jóa gerir hann þetta 2 við hana og í bæði skiptinn er hann sleginn fastar en golfkúla sem þarf að fara 300m í 30 vindstigum sem var helvíti skemmtilegt og ekki nóg með það, þá var hann skallaður seinna um kvöldið. Nú um þessar mundir er eymd hans mín helsta ánægja, i love it, seinheppnasti maður í heimi, án gríns hann er verri en helgi og svo elska ég það líka að ef það er hundaskítur á götum úti þá labbar hann í það. I love it.

Daginnn eftir fer raggi árla morguns í norðurátt, áttina til bróður síns sem býr við bæ kenndan við hús sem kennd eru við árar. Þynkumælirinn nánast fullur hjá okkur Sigga og Helga þannig að dagurinn er bara tekinn út í gegn í Tiger woods, sem ég rústa náttla. Kvöldið á bara að vera rómó með bjór í annari og tiger í hinni en nei nei þá birtast 3 yndisfagrar yngismeyjar sem allt í einu breytast í djöflakonur með svipur og vodka. Það voru Beta, ragga, og alla, á svaka djammi. Helgi ætlar að vera harður og gefa þeim vodka og heldur að þær segi nei eins og stelpur eru vanar að segja en nei nei þá taka þær bara flöskuna af honum og klára hana á 5 mínútum ásamt því að troða nokkrum í okkur, djöflakonur. Nokkuð fyndið að fylgjst með þróun mála þar sem maður var nokkuð edrú. Helgi náttla meiddur og getur ekkert gert og ætlar þess vegna að vera heima, en hvað gerist svo, 1 yndisfríð og lekker stelpa labbar inn sem við köllum bara Alla og helgi breytist úr sívælandi haltrandi hænu yfir í daunillan dansandi lemúr og skellir sér á Crazy daisy að dansa með robocop spelku á annari svo hann dansaði bara á einni löpp og með hina útrétta, hehe. Það kallar maður að hugsa með t*****u. Svo er hann alltaf að væla að ég þurfi að stjana við hann af því að hann getur ekki gert neitt, svo mætir sæt stelpa og hann byrjar að taka heljarstökk og dýfur í lækinn hérna handan við hornið.

 

Hey, stay in band and we´ll go up to sand, up in iceland and make out with rand(-ver)


» 38 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 21:07:47 / david

ást

ég sit hér heima, aftur orðinn veikur og ástin mín er á sjúkrahúsi. Mér líður svo illa því ég veit eiginlega ekkert nema að hann hafi fokkað hnéinu á sér illa upp. Ég sakna þín elskan mín, láttu þér batna. Lengi vel hafa fræðimenn leitað svörum við leyndarmálum lífsins, hvað er ást, hvað er umhyggja, hvað er að elska, hvað er að geta ekki verið án manneskju útaf hræðslu við að geta ekki komist í gegnum daginn án þessarar manneskju og eins og vitur maður sagði áður fyrr: Mynd getur sagt meira en þúsund orð.

http://davidhasselhoff.myphotoalbum.com/view_photo.php?set_albumName=album14&id=Picture_149_jpg


» 8 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 17:08:29 / david

drasl

hvað þessi viðbjóður að gera hérna vinstra megin á síðunni minni, hvaða rugl er þetta. Verið að eyðileggja síðuna okkar, fokkin drasl

æ æ, alla vega þá var eitthver gaur hérna áðan sem þóttist skrifað bók fyrir alvöru karlmenn, frekar alvöru vagínur. hahahaha

smá bíómyndaquiz. hvaða mynd er þetta: we can´t go closer, the radar will find us. there´s only one thing we can do, jam the radar. Ready to jam radar, radar has been jamed.
Þá hefur geimbíllinn kastað sultukrukku í vondaradarinn.

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 20:45:01 / david

SHE SPIES ROCKS

Jæja Halli frussuprump gerir ekki annað en að væla um að ég bloggi aldrei, hann er orðinn svo mikil bloggmær að hann vill blogga 3 á dag um ruglið í Horsens og væri það líklega hægt ef við vildum! En annars er maður ennþá að jafna sig eftir þessa rugl helgi. Nú erum við komnir í pásu fram á næsta laugardag og telst það mikið afrek á þessum bæ. En þá er tvöfaldur fagnaður hjá Bödda og frú og þar býst við dólgslátum í jóa en sem betur er engin á né brunnur sem hann gæti tekið dýfuna í!

Annars eru ótrúlega mögnuð þáttasería að byrja í tv-inu!!! Og þessir ótrúlega flotti og töff og svali þáttur fékk það yndislega nafn: “SHE SPIES!!” Hversu hart er það?? Það er strax byrjað að segja að þessir þættir eigi eftir að vinna til þúsanda verðlauna. Einnig er kominn upp sá orðrómur að  þetta verði valdir næst bestu þættir allra tíma eftir 2 vikur í tímaritinu C.R.A.P!!! En þættirnir sem eru í fyrsta sæti og munu nottla alltaf vera í fyrsta sæti eru nottla: Baywatch, en sá magnaði þáttur komst í fyrsta sætið eftir 3 þætti. En SHE SPIES fjalla um í stuttu máli : 3 fine ass skvísur (þar á meðal Species gellan) að lemja alla í köku og gera ótrúlega flotta og töff og svala og töff hluti!! Eins og í byrjunarþáttinum sem var átta og hálf mínúta af rosalega töff og svölum hlutum voru þær að fá sér bjór á Kom Tit Bar og einhver varð reiður út í eina skvísuna fyrir að vinna hann í pooli og komu 15 mótorhjólagaurar og ætluðu að stúta skvísunum okkar, þar skjátlaðist þeim heldur betur í bakið og eina sem þeir náðu að gera við Claire, Svenstersi og Densitet var að rífa þær úr bolnum svo þær þurftu að lemja þá alla á brjóstahaldaranum. Svo maður er virkilega spenntur fyrir næsta þætti sem á víst alveg að ná upp í 10 mínutur svo hversu góður getur sá þáttur verið og maður skilur bara eiginlega ekki hvað getur ekki gerst á þessum 10 mínutum??  Svo við bræður sitjum stjarfir og bíðum eftir næsta þætti!!

Og fyrst að við erum ekkert búnir að fara á fylleri síðan síðasta fylleri átti sér stað svo ekkert meira fyllerisstand til að skrifa um fyrir en eftir næsta fylliri og það fylliri gæti verið á laugardaginn og þá á eftir að koma örugglega fyllerissögur eða allavega fyllirisblogg þótt kannski ekki mikið fylliri hafi átt sér stað því fylliri er hollt fyrir alla...

 

Massaði bróðirinn kveður að bili

 

 

 

  http://davidhasselhoff.myphotoalbum.com/view_album.php?set_albumName=album12



 


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 17:59:33 / david

bíddu ha heitiru jenný, þvílík tilviljun ég heiti nefnilega Jóhannes

Jæja þá í þetta sinn, sestu hérna hjá mér og ég rugga þér í svefninn. Enn önnur helgi tekinn með trompi þar sem vitleysan flæddi upp úr öllum krummaskuðum. Byrjað á fimmtudegi þar sem ég vann sigga í pool og hann þúrfti að drekka 10 bjóra á 10 mín en auðvitað gat hann það ekki þannig að ég sagðist bara gera það fyrir hann og auðvitað bætti maður 2 bjórum við. Farið í bæinn gert eitthverja vitleysu sem er gleymd og grafinn, og svo í ánna hérna handan við hornið. Vaknað á föstudegi og farið að kauða david hasselhoff gadgets, byssur, talstöðvar, sprengjur, grímur og aiðvitað handjárn. Fórum til Aarhus á grímuball en auðvitað vorum við eina fólkið sem mætti í búningum. Jenny var þar sem gestgjafi og stóð sig við það með prýði, takk fyrir okkur. Ég og hún tókum nokkra dansa og eitt dansmove sem rústaði pleisinu. Það stoppaði allt og allir, einungis til þess að sjá þessa dýrð sem við vorum að búa til en alla vega þá er múvið það að ég snéri baki í hana og hélt í hendurnar á henni og svo kastaði ég henni svona yfir mig eitthvern veginn. Ekki tókst það alltaf en æfinginn gerði okkur að meisturum. Hittum andra (þuríar) niðri í bæ og hristum aðeins upp í Aarhusarbúum sem endaði með því að Helgi tók uziinn á þetta og meig á dansgólfið, ekki bara í smástund heldur tók hann Ogre-inn á þetta og meig í svona 2 mínútur og svo kom stærsti sauður í heimi og fleygði honum út, þannig að þá var bara haldið heim. Eins og uzi þá var hann síðan eitthvað, uu af hverju var mér hent út, hvað er að þessum svísku sæskrímsla svínum að kasta mér út, ég gerði ekkert og næstu tíma fóru í að sannfæra hann. Svo farið heim til jennýar og kúrað. En fyrst var farið í brunninn sem var þar handan við hornið og allir næstum því drukknað þar sem mikið óveður skall á okkur rétt sunnan við sveppinn, nema jói hann drukknaði í augum yndislega fallegu soffíu, hehe. Pizza hut, hut, hut tekið í morgunmat. Aftur í harða Horsens, heimili harðasta manns í heimi, the italian stallion, the headbanger eða bara Helgi harði (alls ekki samt Helgi páll). Stelpurnar úr greddugerði 4 í randers komu í heimsókn og ekki var haldið aftur af sér með að gera grín af ryksugunni eða sollu sogu. Ég er í engum fíling útúrdjammaður og ætla bara chilla en þá stingur Jói upp á því að kaupa Wiskýflösku og sötra bara, ég svona aaa ok. Byrjum á henni og píkan nr. 8 Jojo da hobo verður illt í maganum og ákveður að drekka ekki meira en við vorum búnir að ákveða að klára flöskuna svo jói segir mér ekkert að hann sé hættur að drekka og ég held alltaf áfram þangað til hún klárast. Allir fara á Crazy Daisy að rokka en ég verð eftir til hlust á doors en ekkert svo fullur, kem seinna í bæinn og þá segir jói mér að ég hafi drukkkið alla flöskuna og ég bara jesus, núna er ég orðinn alki, heil wiský og allt í einu byrja ég að verða blindfullur og fer heim þar sem að ég er ekki sáttur með drykkjuskap minn. 4 hrekkur jóa á jafnmörgum dögum en sá hlær best sem síðast hlær þar sem allt gert á mig er borgað fimmfalt en stundum kallaður fimman eða cinco. Hlakkar til hefndarinnar. Helgi er búinn að vera hellaðasti maður í heimi í dag og er að keppa núna, ég vorkenni öllum sem eru að spila með honum, það verða örugglega allir fullir á vellinum útaf frussuprumpinu hans. Já vel á minnst þá var hann á æfingu um daginn og allti einu kasta anders í hann poka sem er 1kg af þyngd og getið hvað það var, da ganja. Rugl. Eins og segi oft þá búum við í gettói, jói var að koma heim til sín áðan og þá er bara gaur inní eldhúsinu hjá honum blindfullur að kalla hvar er smokey hvar er smokey og jói enginn smokey hér þá tekur gaurinn um eitthvað nepalsverð og byrjar að hóta og þar sem jói þekkir helga harða og er búinn að læra ýmislegt af honum þá réðst hann á gaurinn og náði að henda honum út, hetja ha. Hjalli að koma á þriðjudaginn. Sund í fyrramálið og Hot shot maraþon í kvöld Hanskinn over and out með þeim vonum að Helgi harði taki ekki illa í þessa færslu hér, biðjið fyrir mér.

» 8 hafa sagt sína skoðun

22.02.2006 22:01:15 / david

Randers, pungsigsafvötnunarskólinn mikli

Jæja loksins heppnaðist það hjá manni, róleg helgi. Ég segi við Helga á fimmtudaginn, að þessi helgi verði róleg og stútfull af lærdómi. Ég álpast á barinn eftir skóla á föstudaginn með Tony og við ætlum að fá okkur svona eins og 3 bjóra og svo heim en nei nei, það endar í svona 15 og maður er byrjaður að svífa aðeins. En þá nennti maður ekki að vera lengur þar sem ekkert karokee var í gangi, þannig að við skelltum okkur til ulriks í smá Campari og rjóma. En klukkan sex átti ég að mæta í mat til minna kæru fósturforeldra, þannig að maður brunar þangað á svarta hjólafáknum og mæti þar ansi fullur og vitlaus og háma í mig kræsingar með engum eistum, maturinn góður eins og vanalega og ekki versnaði það þegar ég sá að dúllukassastelpan mín hún Kristjana var þarna. Ekki leið á löngu áður en að Tony, Siggi og Ulrik voru mættir á svæðið og allt í einu bara orðið partý þarna, þar sem vodki var drukkinn með þýsku nammipúðri, vibbi. Þegar gamla settið var byrjað að þreytast var haldið í bæinn á Cafe koks, þar sem mikið var um sauðburð og önnur skemmtilegheit. Svo get ég ekki skrifað meira um það kvöld þar sem að ég man ekki meira en það er í lagi því þá er orðið ansi áliðið, þið vitið hvað ég er með magnað gullfiskaminni. Daginn eftir vakna ég illa hellaður og útúr vangaður eftir kvöldið, ánægður að vera laus við púmpa píku en svo kemur hann heim ásamt Gústa slána eftir að þeir hafi verið að spila í árósum og strax er ég bara dreginn úr rúminu og skipað að fara á eitthvað ball í Randers. Fjóla og Ella verða nú ekki ánægðar með mig þar sem ég var búinn að segja að ég kæmist ekki til köben því ég væri veikur (sem ég var reyndar) og ætlaði að vera duglegur. Alla vega þá var haldið til Randers, í eitthvers axarmorðingjaskóla sem er eitthvers staðar lengst upp í sveit þar sem svín og kindur eru í garðinum en samt er þetta hin fullkomni staður til að vera axarmorðingi og góður staður til að losna við pungsig. Ég hef aldrei á ævi minni heyrt jafn mikið talað vibbamál og Gústi og Helgi hlaupandi upp stelpur út um allt naktir að reyna skrensa. En það var ágætis skemmtun. Um morguninn kom ekkert annað til greina en að fá sér svona eins og 2 afréttara, þannig að hlupið var um alla heimavistina að leita að bjór og loksins heppnaðist það og svo stakk pulsan hann Helgi upp á því að við færum öll til Horsens á fyllerí að klára sófann okkar, og allt þetta klikkaða lið í þessum píkukláða skóla sagði bara já, við erum til. Svo þá var haldið á Jensens og svo á bar og enn og aftur var maður orðinn illa hífaður og nokkrir kassar og 3 ginflöskur keyptar fyrir lestarferðina heim. Þegar komið var hingað var hringt í alla elítuna hérna og haldið partý á norretorvinu. Þá fyrst byrjaði allt gamanið þar sem allir urðu illa hellaðir á sunnudagskvöldi, rugl. Án gríns voru kláraðir 6 kassar af öli og 4 sterkar flöskur og íbúðin var eins og eftir fyrri heimstyrjöldina (sem ég var einmitt að halda fyrirlestur um núna í dönsku, við fengum bara vita það í tímanum, hell). Í þessu sunnudagspartýi gerðist margt skemmtilegt, 3 klámmyndir keyptar, ónefndur aðili Gústi í sturtu með ónefndri snót og ónefndur aðili Helgi að horfa á, skrensingar í rúminu mínu (fussumsvei) með Helga dauðan við hliðiná og þegar hann vakanði sparkaði hann þeim úr rúminu sem mér finnst helvíti sniðugt af kallinum. Eftir þessa helgi er ég farinn í frí. Búinn að vera svaka dugelgur við það að ná áfenginu úr líkamanum, fór t.d. í sund í morgun og synti 1 km. Sem er soldið skárra en að fara í brunninn hérna handan við hornið, sem stendur reyndar fyrir sínu ,og baða sig.

Hanskinn kveður með umtöluðm orðum, lifið heil, ekki gera feil, ekki borða seil, ekki pungstappa reil og þetta var ágætis tale.

 

Við kallarnir erum nú í dönsku að blogga hlið við hlið, það verður spennandi að sjá munin á þessu þar sem við erum með lélegasta minni í heiminum.

 

Eins og þjóðverjar segja virkilega reiðir á austurlenskri þýsku: “SCHEIZEFULEM was haben sie bitte auf wiedenschen treizen und pornogravspieleren schlapte en flutzenflautzen” eða eins og á fallegri íslensku: “FOKK, hvað þessi helgi var rugluð”!!!

Þessi helgi var rosaleg í alla staði. Byrjum á föstudeginum þar sem ég, Halli, Jói og Kristjana fórum í mat til Manna Borgs og Ellu Gellu í magnað íslenskt lambalæri sem var alveg off the hízi. Þar byrjaði smá drykkja en endaði í fokkin drykkjuleikjum þar sem Jóhannes var að taka Absent glös (ekki staup, GLÖS) úr naflanum á Snúllu (hundur Manna Klikks og Ellu Flipps)!!! Sem Snúlla fílaði nottla mjög vel þar sem hún er á lóðaríi. Og það kvöld endaði nottla í bænum í trylltum fíling með typpaost í annari og Jóa í hinni. Og endaði kvöldið eins oft áður, með jóa í brunninum og þetta, þið þekkið þetta vel. Á laugardeginum vaknaði ég vel snemma  til að keppa í böskuknattleik á Árhus. Og þar í bæ býr ungur pungur er heitir Ágúst, a.k.a Gústi Gredda. Og shit hvað sá gaur er fokkin graður!! En allavega dró hann með mér að keppa þennan gífurlega skemmtilega leik, svo eftir leikinn var stefnan tekin á Horsens, a.k.a Hönk bæ Danmerkur þar sem fólk er alltaf tryllt, bert að neðan. En er komið var til Horsens hringdi einhver skækja í okkur og sagði okkur frá partýi í Randers, eða á fjöldamorðingjastað rétt fyrir utan Randers. Þessi skækja heitir Lára (þú ert engin skækja lára mín, verð bara að vera harður í textanum). Svo að ég, Greddan (gústi), og Halli ákváðum taka helgina með hörku og fara til Randers og trylla líðinn og sýna þessum einfættu skápum hvernig við úr horsens kunnum að halda rústpartý (líka greddan frá Árhus). Er komið var til Randers var farið á vinnustað láru sem heitir Wet Dickcheese en hún var að klára vaktina sína eftir föstudagsnóttina. Svo var haldið á fjöldamorðingjastaðinn þar sem partýið var byrjað og við stútuðum búsinu eins og við hefðum aldrei smakkað alkahól áður. Djammið var snilld í alla staði, margt fyndið sem gerðist þar, og drengur að nafni Högni svaf hjá holgóma sextugri skækju. Er var vaknað á sunnudeginum stakk Halli upp á að við ættum að fá okkur afréttara sem endaði í þynnkumat á Jensens Bofhus og á bar þar við hliðina í 19 könnur og 7 flöskur af gulrótarlíkjör. Svo var ákveðið að halda til Hönk bælisins í Horsens í brjálað sunnudagspartý. Bjórsófanum var stútað og 8 flöskum af blönduðum ávaxtasafa. Og afleiðingarnar voru ekki FOKKIN góðar!!! Fyrst kom ég að ónafngreindum aðila inn í sturtunni minni með ryksuguna á skaufanum á sér, og ekki var það nóg!!!!! Ég vaknaði af drykkjudauða við að ónafgreindi aðilinn var að byrja humpast við hliðina á mér, á ryksugunni!! Og ég sparkaði nottla í ónafgreinda aðilann og hljóp hann inn á klósett skíthræddur og ryksugan mökunarhljóðaðist þangað inn á eftir ónafngreinda aðilanum. Og örugglega inn í sturtuna okkar aftur!!!!

 

En takk fyrir okkur í Randers

Helgi Páll

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 15:09:04 / david

eistu sem menn kreistu

Wut up loc dawgs, shizzle da wizle my nizzle. Át fyrsta kindapunginn minn helgina, hann smakkaðist mun verr en hákarlaskötusjeik. Það var nefnilega þorrablót íslendingafélags Horsens á laugardaginn sem var algjört yndi, maður var frekar veikur svo að maður drakk ekstra mikið til að gleyma því að maður væri veikur. Byrjuðum þetta á sötri heima hjá meistara manna, þar fauk 1 liter Morgan og svo var haldið í rútur og lagt af stað til lands viðbjóðs með eistum í. Eftir nokkur eistu og 2 hausa kom dansispil í loftið, sem var ekki slæmt. Menn á borðum, öxlum og rössum að dansa úr sér allt vit, dansað þangað til að eyrnasneplar byrjuðu að hrynja af. Loftræstinginn var biluð og 300 dansandi íslendingar sem voru stútfullir af eistum svitnuðu eins og cameldýr, þannig að þetta var eins og í sænsku sæðisgufubaði. Þess vegna var strax ákveðið að stökkva í ánna hér handan við hornið, kæla sig og þrífa eistnasvitann af sér. Helgi pulsupési, rútan stoppaði niðri í bæ kl 3:30 um nóttina og bæjarferð var ákveðin en eftir allt þetta eistnalyppuát var maginn vel súr svo við því var eingungis eitt ráð og það var að fá sér pizzu með salati og chili. Eftir hana var sæðissafinn basaður og sýrustig magans í góður lagi en eins og sagt var á árum áður ”Margur maður þreytist af miklu pungaáti, því skaltu leggjast á meltuna og melta þessi eistu”. Svo var leiðinni haldið heim og Helgi pulsupési ákveður að fara með okkur shortcut sem hann var búinn að fara OFT áður. Miklu styttri sagði hann en nei nei þarna voru skotgrafir og gaddavír, eina leiðin var samt bara yfir þessa víra því eigi kom til greina afturför því við vorum íslendingar og íslendingar halda alltaf ótrauðir áfram. Ég skar mig á hendi, Inga skar hendina nánast af sér en hún náði að hanga á einni taug, Helgi reif bindið sitt og Eva fór verst út úr því, hún skar sig á lærið og ákvað að reyna mála bæinn rauðann, aldrei sé stelpu jafn chillaða yfir svo miklu blóði en auðvitað, hún er víkingakona en þær eru mjög vanar blóði og pungum. Ég reyndar einnig af því að í póllandi í sumar fékk ég hanaeistusúpu hjá Pelle sem var helvíti góð. En nú er það bara skólinn og svo eru eistnasleikjurnar Ella og Fjóla að koma um helgina svo það verður aðeins tjúttað á sams. Verum ávalt hress sem fress.


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 17:21:19 / david

ferðasaga Chamnoix í stuttu máli

Sælar Hanskinn hérna. Ætla að koma með smá ferðasögu hérna. Förinni var heitið til Chamnoix France ásamt Sigga sýru og Skarpa varðsvíns mínum kæru félögum. Ferðin mín hófst eiginlega á miðvikidagskvöldi, þar sem hrunið var allsvakalega í það og ég fór í það mikið blackout að ég hélt að ég hefði farið að sofa kl 12 en svo frétti ég daginn eftir að ég var að djamma til 7 um morguninn. Svo var fimmtudagur og þá átti bara að safna styrk fyrir ferðina en þá var ég neyddur til að koma og heilsa upp á strákana í bekknum og svo um leið og þeir sáu að ég var að koma fóru þeir út í búð að kaupa bjór og absent svo eftir það var ekki aftur snúið og maður drakk allhressilega ókeypis þar Ulrik var í svo mikilli ástarsorg, gott fyrir mig en slæmt fyrir hann. Daginn eftir vaknaði maður og dreif sig í snarasta út á lestarstöð. Á leiðinni til köben lenti ég í reykingaplássi sem er hell og ekki nóg með það þá var illa lyktandi dansandi róni á móti mér sem var að spila eitthvað helvítis tekno trans píkupopp í nýja Nokia símanum sínum. Leið eins og óheppnasti maður í heimi, þunnur í reyksvæði og með slefandi bavíana í samræðum. Komið var til Ragga sem var yndislegt þar sem hann er svo mikil dúlla. Strax og ég kom sagði hann mér að Tryggvi kúluvarpari var búinn að bjóða okkur í bjór og pizzu og horfa á Ísland Danmörk. Sem þýddi nátturlega ekkert annað en fyllerí. Enn og aftur vaknaði maður helþunnur til að fara að hitta Chamoix dúllunnar. Fyrsta sem við gerðum þegar komið var inn, var að kaupa stærsta bjórinn í flugstöðinni, ekki einn heldur 2. Í fluginu til Zurich og svo Genf var aðeins sötrað og stundaður mile high klúbburinn. Chamnoix var snilldar staður og fyrstu 2 dagana var bara drukkið og djammað og ég kynntist 2 dyndnustu mönnum í heiminum, skarpa og sigga. Ótrulegt að þeir hafi ekki verið drepnir svona 10 sinnum. Svo var nátturulega líka eitthvað fjall þarna sem heitir Mt. Blanc svo maður varð að ræda það eitthvað. Ég og Siggi covereðum mest allt svæðið, sem var stútfullt af geðveikum brekkum, bestu brekkum sem ég hef farið í en mikið var um snjóleysið svo einungis var rædað 4 af 6 dögum. Við höfðum fengið þær fréttir að mikið væri um stuld af hótelum og þar sem við vorum á hótel Hellhole, algjör skítur, þá ákváðum við Siggi að leigja okkur varðsvín til að passa íbúðina alla daga. Varðsvínið varð Skarpi en hann getur manna best skemmt sér einn, tölvuleikir, lita, flengja apann og svífa yfir til annara landa í huganum. Þar sem ég var eiginlega aldrei neitt mega ölvaður eins og ég á mér vant þá ákvað ég að hrynja í það síðasta kvöldið, sem ég gerði kannski aðeins of mikið af. Rúllaði um götur með mann og annan í hvolpataki, er enn að jafna mig á marblettunum og öllum verkjunum. Þar sem við vorum sárir og þunnir eftir kvöldsins átök þá var ákveðið að skella í sig bjórum á flugvellinum í Genf, þar sem við hittum þennan yndislega Rússa og strákarnir urðu geðveikt hneykslaði á mér fyrir það að stela bjór en það var bara svo mikil röð að ég nennti ekki að bíða. Ekki má gleyma að rétt áður fórum við á veitingastað sem var yndislegur. Ég pantaði mér steik og fékk hráan hamborgara og strákarnir fengu eitthvern viðbjóð svo ekkert af því var étið en 10000 borgaður fyrir. Köben, Raggi er kominn í nýjan kústaskáp sem var helvíti góður bara og strax einni tópas stútað svo enn og aftur haldið á djammið sem endaði á istegade sem er orðinn bara eins og Disneyland, ömurlegt. Daginn eftir fóru strákarnir heim og ætluðu að taka brettið mitt með en gátu það ekki svo þeir settu það bara í geymslu og slepptu því að láta okkur vita. Ég og Raggi fórum þá til Sóleyjar, Stebba og Margrétar sem er algjör snillingur og dúlla. Svo var kvatt og förinni heitið aftur til kæru Horsens, greatest city in the world. Kom heim tók til og ákvað að hætta sukki, byrja mæta á fullu í skólann og vera duglegur eins og oft áður en nei daginn eftir var ég bara orðinn fárveikur og er enn svo ég er ekki enn búinn að mæta í skólann, týpiskt. Svo varð ég fyrir geðveikum vonbrigðum þegar Helgi sagði mér að þorrablót íslendingafélags Horsens væri næsta laugardag sem þýðir sukk og vel á minnst þá er ég núna einn heima með matinn á malli að bíða eftir kallinum því hann er á eitthverju sukki núna. En í alla staði var þessi ferð geðveik í alla staði fyrir utan nokkra atburði. Jæja þá er bara lengsta færsla ævi minnar á enda og ég þarf að fara strokka út smjörið. 1.2 og bææææææææ.

» 4 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 19:43:17 / david

Pamela is back

Baywatch í dag var heldur betur góður. Helgi fær heimþrá núna þar sem Pamela er mætt í þættina, ásamt tussunni Stephie og sæta stráknum þarna C.J. eða eitthvað. Hobie litla hetjan okkar er í flugi með móður sinni og nýja kallinum hennar. Hún lendir í eitthverjum vandræðum og brotlendir en rétt áður en hún fer í sjóinn hringir Hobie í Hasselhoffinn og nær að segja honum hvar þeir eru og viti menn það er alveg við ströndina hjá Baywatch. Allt verður brjálað og allir kallaðir út í björgun og David snöggur að fara í bleiku skyrtuna sína sem nátturulega var ber ofan eins og pabbi. Flugvélin er á botninum í svona klukkutíma en enn ekki orðin full að vatni. Kafararnir finna hana en geta ekki opnað strax því mamman er föst undir risa stórri súlu og ef þeir opna fyllist allt af vatni strax og mamman deyr, skiljiði. Kallinn hennar er alveg eins og píka þarna, vælandi eins og Helgi Píka en Hobie nær að halda aftur af honum með sýnu svala Hasselhoff yfirbragði. Þeir ná svo að lokum að bjarga þeim öllum, gaman. En þá byrjar það besta, þau eru öll að opna veitingastað og gyðjan Pamela nátturlega á bikininu, og hún er FFFFIIIIIIIIIIIINNNEE. Pabbi C.J. er á leiðinni til France og vil fá hann með en þá býður Pamela honum að flytja bara til sín og auðvitað segir hann já og þá tekur pabbi hans allt sem hann á af honum. Svo ákveða David og Hobie að ekki segja mömmunni frá þessu með kallinn því þeir vita að hann er heigull en elskar hana samt með öllu hjarta. Svo endar þátturinn á því að feðgarnir fara saman á kanó og auðvitað er David í bleikum galla hlaupandi í extra slowmotion. Ég sverð það þessi gaur er alveg eins og pabbi. Svo það er nóg að gerast hérna hjá okkur í Baywatch glápinu.

Annars er dagurinn búinn að vera ágætur og horft á vidjó allan tímann, 5 friends, 2 bíómyndir og 7 ljósbláar. Ekki enn kominn í nærbuxur því það er enginn Helgi hérna til að segja manni að fara í föt svo maður getur stripplast eins og maður vil. Passa mig bara á því að læsa þar sem það eru alltaf löggur, sjúkraliðar eða rónar að labba hingað inn. Sannkallað ghettó, en nú þarf maður að fara að sækja fötin sín.

Peace out from da hood and stay in school all´ya fool -s


» 10 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 00:45:46 / david

FRIENDS

Smá update. Er hérna að horfa á Lost in space með Joey Tribbiani í aðalhlutverki sem geimflugmaður, totally not cool. Helgi farinn og mér líður eins og sé með rýting í þar sem áður fyrr var hjarta en nú lítill ísklumpur. Tengdó einnig farinn, valdi frekar Helga og nú líður mér eins og Manni sé að rífa fótlegginn minn út um rassinn á mér í gegnum munninn. Jói einnig heima en hverjum er ekki skít sama, þá losna maður alla vega við að fá gamlar konur í þindina. Linda frænka hans H.P. er búinn að vera hérna hjá okkur í viku og hún er verri bytta en Helgi Haus, Halli Súla, Gubbi djamm, Skarpi djöflahaus og Jói 8 samanlagt. Svo það var mikið djamm þessa viku. Helgi skítur, ég fór í sumarbústaðarferð um helgina með bekkjarfélögunum (sem var með sundlaug, magnað) og Helgi flaug heim á laugardaginn og Linda frænka hans fór rétt þar á eftir. Fyrir þennan laugardag var búið að vera partý hér þriðju-, miðviku- og fimmtudag og sama og ekkert búið að taka til. Þegar ég kom heim í dag var íbúðinn í fyrsta lagi köld eins og hjarta mitt (kiss kiss Helgi) en einnig var hún sóðalegri en Habba með í dópbæli 4 og lyktaði verr en Andri á slæmum degi. Tveir mínusar í kladdann á Helga og Lindu. En alla vega er þessi vika búinn að vera góð nema kannski heimkoman í dag. Vikan verður samt skrýtin áður en ég fer til frakklands á föstudaginn vegna þess að dúllan mín er ekki hjá mér. Ég vaknaði áðan og settist inn í rúmið hans Helga, kveikti á Fifa, setti fjarstýringarnar á borðið, en þá heyrðist ekkert skítkast og þá leit ég til hliðar og sá að hann var ekki hérna við hliðina á mér þannig að ég fór bara að leika við sjálfan mig í rúminu hans. Aumingja Ella tengdó ein hérna í mosanum, aumingja dúllan mín. Ármann kannski að maður kíki í heimsókn með eins og 4 rauðvín. Djók, vill ekki fá mesta og versta prumpara allra tíma á móti mér.

Gangið hratt inn um gleðinnar dyr. Súlan kveður með 5 útglennta fingur á súlunni.

P.s. Takk fyrir vísuna Salome, það er greinilegt að ég þarf að fara að bæta mig


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.01.2006 15:09:59 / david

bringuhár sem veita mér tár

Jæja kominn tími á að veita aðdáendum bestu bloggsíðu heims smá ánægju og uppfæra hana. Byrja á smá kveðjum hérna, Gleðilegt nýtt ár og allt það saman en það sem meira skiptir máli þá ætla ég að óska mér til hamingju með ammælið mitt. Til hamingju með ammælið Halli, 21 yndisleg ár að baki með þér, vona að næstu verði eins góð og gakktu hægt um gleðinnar dyr. Kláraði einmitt efnafræði 11 jan. þann merkisdag, þegar kærleiksljós hins góða og yndislega hundraðfaldaðist fyrir 21 ári síðan. Mér finnst að það ætti að færa aðfangadag yfir á 11 jan, ekki fagna jesú heldur fæðingu meistarans mikla úr melgerði. Meðan maður er í aldursumræðunni, þá ætla ég að koma með smá kenningu hérna. Þetta er mín fyrsta kenning, eitthvað sem allir munu vita eftir 20 ár, þá verð ég þekktur sem faðir hárakenningarinnar miklu. En svona hljóðar hún:

            Þetta byrjaði allt saman fyrir svona 2 árum, þega ég átti pottaumræður við minn kæra vin Kristófer. Nú er Kristófer loðnasti maður sem ég þekki, hann gæti alveg eins verið talibani heldur en íslendingur eða api frekar en manneskja. Þegar við vorum svona 13 ára þá var hann með líkamshárvöxt á við manna borg og pabba samanlagt, og það bara þegar hann var 13. Núna er hann 21 árs eins og hinn mikli höfðingi, Halli, svo prófi þið sem ekki þekkið manninn að ímynda ykkur hann í dag. Hann er eins og gellan í Adams family sem labbar ofan á hárum sínum. Alla vega þá vorum við í pottinum og hann rosa stoltur tekur í eina lufsu á bakinu á sér og fer að hlæja af bringuhárunum mínum, þessi 3 yndislega fallegu hár sem ég var búinn að safna í 19 ár. Ég sagði bara við hann, þar sem þú varst eins eins og 40 karlmaður 13 ára þá verðuru eins og 80 ára gamalmenni 30 ára en ég verð eins og 20 þegar ég verð 40 og á eftir að lifa miklu lengur og hló með skömmustulegum hlátri vegna þess að ég var bara með 3 en hann 30.000 bara í kringum hægri geirvörtuna. Alla vega nóg um hann. Hver man nú ekki eftir því þegar ég var kominn með 3 hár á bringuna og fór í þemapartýið hjá Huggu, með gervibringuhár fest í þessi 3, og fólk eins og Kristófer og fjóla sem finnst 3 hár bara ekkert voru alltaf að rífa í gervihárin og þar með komu alvöru hárin upp með rótum. 19 ár farinn í súginn. Hugmyndin að kenningunni er búinn að vera heillengi í þróun, hún byrtist mér fyrst þegar ég var að horfa á menace II society og svo aftur í myndinni don´t be a menace. Þar voru einmitt fleygharðir negrar að segja unglinga negrum að fá sér bjór og þá myndu hár vaxa á punginn á þeim. Núna eru komnir 5 og hálfur mánuður í danaveldi þar sem bjórdrykkja er eins algeng og líkamshárin á Kristóferi eða Manna borg. Viti menn, hárinn eru léttilega komin yfir 30 núna, fólk getur meira segja farið að sjá hárin ef það horfir vel. Ég sem tilraunadýr í þessari kenningu, þá tel ég að ég geti fullyrt að þetta virkar. Stærðfræðin sýnir það óneitanlega að 3/19 er stjarnfræðilega minna en 30+/0,45. Sanni þið til að eitthvern tíman verða skrifaðar bækur um manninn í danmörku sem var ekki með bringuhár en fékk sér bjór og þá komu hár og þá skrifaði hann kenningu.

            Núna er föstudagur oft kallaður flöskudagur, án efa verður drukkið eins og cameldýr eftir viku eyðimerkulabb eða bara eins og Jojo da hobo gerir 5 daga vikunnar. Manni og Ella, eða tengdó voru að bjóða okkur í stærstu borgara í heimi, kannski maður nái 2 bringuhárum af því en hver veit. Pílukvöld hjá Eyjó í kvöld, sem ég held að sé eins og ég, eins og barnarass á bringunni. Við söfnum saman í kvöld. Sjaldan er ein báran stök. Þessi yndislega færsla þarf að enda núna þar sem ég er að verða edrú og það má ekki gerast, en ég enda hana á vísu til manna borgs sem var hundgamall þann 21 des.

 

33 ár að baki Borg.

Borgara þína ét.

Manna sex er sorg.

Smátt er hans két.

 

 Hasselhoff kveður og segir með 2 útglennta fingur "live long and prosper".


» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2